Forsíða
EURES (EURopean Employment Services) er samstarf um vinnumiðlun milli ríkja á Evrópska Efnahagssvæðinu (EES). Meginþættir EURES eru að leiðbeina fólki í atvinnuleit erlendis, veita upplýsingar um búsetu- og starfsskilyrði og aðstoða vinnuveitendur sem hafa áhuga á að ráða til sín fólk frá öðrum EES-löndum
Nánar »
Fréttir og tilkynningar
2. Janúar 2012
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi
Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.
7. Október 2011
Starfakynning í Ráðhúsi Reykjavíkur 14. og 15. október
Vinnumálastofnun og EURES standa fyrir starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 14. október kl. 17:00 – 20:00 og laugardaginn 15. október kl. 12:00 – 18:00. Á kynningunni verða kynnt laus störf og veittar upplýsingar um starfs- og búsetuskilyrði víða í Evrópu. Einnig gefst fólki færi á að ræða beint og milliliðalaust við evrópska atvinnurekendur.










