Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu EURES

Um Eures

EURES (EURopean Employment Services) er samstarf um vinnumiðlun milli ríkja á Evrópska Efnahagssvæðinu (EES). EES-löndin má sjá hér. Átta hundruð Euresráðgjafar mynda samskiptanet í öllum ríkjum EES. EURES netið er á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins en með EES-samningnum hafa Íslendingar aðgang að þessum stóra vinnumarkaði. Markmiðið er að auðvelda vinnandi fólki að flytjast milli EES-landa. Euresráðgjafar miðla upplýsingum um atvinnutækifæri og atvinnuleitendur svo hægt sé að leysa staðbundna manneklu og atvinnuleysi á ýmsum sviðum með flutningum milli svæða. Meginþættir EURES eru að:

  • Leiðbeina fólki í atvinnuleit erlendis
  • Veita upplýsingar um búsetu- og starfsskilyrði
  • Aðstoða vinnuveitendur sem hafa áhuga á að ráða til sín fólk frá öðrum EES-löndum

EURESráðgjafar hafa allir fengið sömu grunnþjálfun og hafa sérfræðiþekkingu í atvinnumálum innan EES. Eures ráðgjafarnir veita m.a. upplýsingar um eftirfarandi:

  • Atvinnutækifæri í EES-löndum
  • Almannatryggingar og heilsugæslu
  • Skattamál
  • Menntamál
  • Starfsþjálfunartækifæri
  • Samanburð á starfsréttindum
  • Framfærslu og húsnæðiskostnað
  • Hagnýt heimilisföng vegna sérþarfa

EURES á Íslandi er rekin á vegum Vinnumálastofnunar 
Ath. Myndirnar á síðunni eru fengnar frá © European Communities


Atvinna erlendis
Vinnumálastofnun
Sumarvinna á Norðurlöndunum
Nám erlendis
Hallo Norden
Norræn vefgátt um almannatryggingar
Nordisk eTax - Norræn skattamál
Europass - ferilsskrá

Fréttir og tilkynningar

2. Janúar 2012

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi

Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.

7. Október 2011

Starfakynning í Ráðhúsi Reykjavíkur 14. og 15. október

Vinnumálastofnun og EURES standa fyrir starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 14. október kl. 17:00 – 20:00 og laugardaginn 15. október kl. 12:00 – 18:00. Á kynningunni verða kynnt laus störf og veittar upplýsingar um starfs- og búsetuskilyrði víða í Evrópu. Einnig gefst fólki færi á að ræða beint og milliliðalaust við evrópska atvinnurekendur.


Athyglinni beint að

EURES aðstoðar þýska atvinnuleitendur við að finna ný tækifæri úti á landsbyggðinni í Sviss

Á hverju ári næst ekki að ráða í fjölmörg laus störf innan ferðamannaiðnaðarins – héðan í frá mun nýtt samstarf veita þýskum atvinnuleitendum kost á að komast í samband við nýja atvinnuveitendur, með aðstoð EURES.
Texti ritstýrður síðast: 12/2010

EURES í Eistlandi – að mynda samstarf til að vernda réttindi atvinnuleitenda

EURES í Eistlandi og áhugahópurinn MTÜ Living for Tomorrow hafa hafið samstarf til að vernda atvinnuleitendur, sem huga á starf erlendis, gegn sviksamlegum og hrottafengnum atvinnuveitendum.
Texti ritstýrður síðast: 11/2010

Hvernig tungumálanám getur leitt til nýrra tækifæra

Yfirstandandi samstarf milli EURES í sænskumælandi Álandseyjum og tungumálaskóla í Þýskalandi er að gera faglærðum, atvinnulausum þýskum atvinnuleitendum kleift að öðlast hagnýta reynslu á fallegum stað.
Texti ritstýrður síðast: 11/2010

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta
In English