Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu EURES

EURES fréttir

24.9.2007

Nýjasta tölublað Eures og þú

Nýjasta tölublað Eures og Þú er komið út. Blaðið er gefið út af Eures (European Employments Service) og er tilgangur þess að fræða almenning um störf Eures. í þessu tölublaði er aðaláhersla lögð á European Job days sem eru haldnir um alla Evrópu. Hægt er að nálgast nýjasta tölublaðið á íslensku hér.

7.9.2007

EUROPEAN JOB DAYS 2007

  

Kynning á atvinnu- og námstækifærum í Evrópu.

Jobday button 

Ráðhúsi Reykjavíkur 12. september, kl. 12-18.

3.9.2007

Upplýsingabæklingur fyrir erlenda starfsmenn; lífs- og vinnuskilyrði á Íslandi

Í bæklingnum er leitast við að gefa hagnýtar og greinagóðar upplýsingar um flest það sem erlendir starfsmenn þurfa að vita og hafa í huga fyrstu mánuðina á Íslandi. Farið er yfir hluti eins og skráningu inn í landið, atvinnuleit, skattakerfið, framfærslukostnað, félagsleg réttindi, skólakerfið og fleira. Með útgáfu bæklingsins viljum við stuðla að aukinni þekkingu erlendra starfsmanna á réttindindum sínum og skyldum á íslenskum vinnumarkaði og í íslensku samfélagi yfirleitt.

Hægt er að nálgast bæklingin á .pdf fomri hér.

7.8.2007

EURES heldur uppá starfadagana.

Evrópskir starfsdagar 2007 er átak sem allar EURES stofnanir taka þátt í, en því er bæði ætlað að kynna starfsemi okkar svo að sem flestir frétti af henni og að koma upp vettvangi þar sem fjöldi vinnuveitenda og fólks í atvinnuleit getur hist og rætt málin.

3.8.2007

EURES og Þú

Nú er fréttablað EURES, EURES and You, komið út á íslensku og kallast á okkar ástkæra tungumáli EURES og Þú.  Hægt er að ná í blaðið á pdf skjali hér.

29.6.2007

Eures and you

Blaðið Eures and you er gefið út fjórum sinnum á ári. Það fjallar um starfsemi EURES, hvað hefur verið gert og hvað sé á döfinni. Nú geta allir nálgast nýjasta tölublaðið hér

25.6.2007

Áhugaverð erindi á ráðstefnu EURES

Mörg áhugaverð og fróðleg erindi voru flutt á fundi EURES á Hótel Sögu síðastliðinn föstudag 22.Júní. Gætti mun meiri bjartsýni í erindum innlendra fyrirlesara en á svipaðri ráðstefnu sem haldin var á vegum EURES síðasta haust. Voru þeir þó allir sammála að betur má ef duga skal. Þá lýstu erlendu fyrirlesararnir aðstæðum í sínu heimalandi og ljóst er að aðstæður Íslands, Írlands, Noregs og Bretlands eru um margt líkar enda hefur straumur starfsfólks frá Austur Evrópu ekki síst legið til þessara landa og ættu þessi lönd að getað lært mikið af hvort öðru.

 

13.6.2007

EURES mobility conferenc, Hotel Saga, June 22nd

EURES in Iceland will host a conference where trade unions, employer's organizations, labour market authorities and other concerned parties are brought together to address the increased East - West mobility after the EU enlargement. What are the consequences for the Icelandic labour market and how have we managed to adjust our control and enforcement authorities to this new situation?

The conference will be held at Hotel Saga at Sunnutorg (near the University of Iceland) on June 22nd.


Atvinna erlendis
Vinnumálastofnun
Sumarvinna á Norðurlöndunum
Nám erlendis
Hallo Norden
Norræn vefgátt um almannatryggingar
Nordisk eTax - Norræn skattamál
Europass - ferilsskrá

Fréttir og tilkynningar

27. Mars 2012

Upplýsingafundir um flutning til hinna Norðurlandanna

Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, og EURES, Evrópsk vinnumiðlun standa fyrir upplýsingafundum um að flytja til hinna Norðurlandanna. Á fundunum gefur fulltrúi EURES góð ráð varðandi atvinnuleit og starfsmaður Halló Norðurlanda veitir hagnýtar upplýsingar um skráningu inn í landið, félagslegar bætur til barnafólks, nám, húsnæðisleit og fleira.

• Fimmtudaginn 29. mars kl. 18:00: Að flytja Danmerkur

• Fimmtudaginn 29. mars kl. 20:30: Að flytja til Noregs

• Fimmtudaginn 12. apríl kl. 18:00: Að flytja til Svíþjóðar

2. Janúar 2012

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi

Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.


Athyglinni beint að

EURES aðstoðar þýska atvinnuleitendur við að finna ný tækifæri úti á landsbyggðinni í Sviss

Á hverju ári næst ekki að ráða í fjölmörg laus störf innan ferðamannaiðnaðarins – héðan í frá mun nýtt samstarf veita þýskum atvinnuleitendum kost á að komast í samband við nýja atvinnuveitendur, með aðstoð EURES.
Texti ritstýrður síðast: 12/2010

EURES í Eistlandi – að mynda samstarf til að vernda réttindi atvinnuleitenda

EURES í Eistlandi og áhugahópurinn MTÜ Living for Tomorrow hafa hafið samstarf til að vernda atvinnuleitendur, sem huga á starf erlendis, gegn sviksamlegum og hrottafengnum atvinnuveitendum.
Texti ritstýrður síðast: 11/2010

Hvernig tungumálanám getur leitt til nýrra tækifæra

Yfirstandandi samstarf milli EURES í sænskumælandi Álandseyjum og tungumálaskóla í Þýskalandi er að gera faglærðum, atvinnulausum þýskum atvinnuleitendum kleift að öðlast hagnýta reynslu á fallegum stað.
Texti ritstýrður síðast: 11/2010

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta
In English