EURES fréttir
13.9.2008
Norræn vefgátt um almannatryggingar
Nýlega var opnuð ný vefgátt sem gerð er af yfirvöldum um almannatryggingar á Norðurlöndunum.
Vefgáttin er ætluð þeim sem flytja og/eða stunda atvinnu eða nám í öðru Norðurlandanna. Vefgáttinni er ætlað að veita leiðbeiningar um hvaða landslög eiga við í hverju tilviki. Einnig er að finna upplýsingar um ýmsar greiðslur sem viðkomandi kann að eiga rétt á. Á vefgáttinni er hægt að finna hlutaðeigandi yfirvöld í viðkomandi landi og krækjur til þeirra.
Slóðin á þennan nýja og glæsilega vef er: http://nordsoc.is/is/
Fréttir og tilkynningar
27. Mars 2012
Upplýsingafundir um flutning til hinna Norðurlandanna
Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, og EURES, Evrópsk vinnumiðlun standa fyrir upplýsingafundum um að flytja til hinna Norðurlandanna. Á fundunum gefur fulltrúi EURES góð ráð varðandi atvinnuleit og starfsmaður Halló Norðurlanda veitir hagnýtar upplýsingar um skráningu inn í landið, félagslegar bætur til barnafólks, nám, húsnæðisleit og fleira.
• Fimmtudaginn 29. mars kl. 18:00: Að flytja Danmerkur
• Fimmtudaginn 29. mars kl. 20:30: Að flytja til Noregs
• Fimmtudaginn 12. apríl kl. 18:00: Að flytja til Svíþjóðar
2. Janúar 2012
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi
Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.


















