Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu EURES

EURES fréttir

7.11.2009

Ný handbók um atvinnuleit

EURES vill vekja athygli á nýútkominni handbók um atvinnuleit erlendis.
Þessi bók er gefin út af framkvæmdarstjórn ESB í tilefni 15 ára afmælis EURES. Bókin er á íslensku og inniheldur greinargóðar upplýsingar um hvernig best er að haga atvinnuleitinni í löndunum EES-svæðisins.

13.10.2009

Viltu starfa í Evrópu?

Vinnumálastofnun og EURES standa fyrir evrópskri starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur
föstudaginn 16. október frá kl. 17:00 til 20:00 og laugardaginn 17. október frá kl. 12:00 til 18:00.

25.9.2009

Evrópskir Starfadagar 2009

Á hverju ári skipuleggja EURES teymi í öllum ESB löndunum hundruð ‘Evrópskra starfsdaga' - sem snúast um að ráða fólk í vinnu eða hitta nýja vinnuveitendur. Þar býðst fólki sem er að leita sér að vinnu gullið tækifæri til að ræða um óskir sínar við EURES ráðgjafa og komast að því hvernig EURES getur orðið því að liði.

21.9.2009

Námskeið um flutning innan Norðurlandanna

Halló Norðurlönd og EURES standa fyrir stuttum námskeiðum fyrir þá sem undirbúa búferlaflutninga
til Danmerkur, Noregs eða Svíþjóðar. Farið verður yfir atriði sem snúa að flutningi,
svo sem skráningu, almannatryggingar, atvinnu- og húsnæðisleit.

17.9.2009

Nýtt á eures.is

Við viljum vekja athygli á nýjum eiginleika hér á síðunni. Hlutinn "Upplýsingar um einsök lönd" hefur verið uppfærður. Útlitinu hefur verið breytt og auk þess má nú finna mun meiri upplýsingar um öll löndin. Sjá nánar hér.

4.9.2009

Hvað er E-301 og E-303?

Ef einstaklingur ætlar í atvinnuleit í öðru EES-landi er hægt að fá vottað að hann hafi verið atvinnuleysistryggður á Íslandi. Þetta er gert með því að sækja um E-301 vottorð með því að fylla út eyðublaðið E-301/N-301

26.8.2009

Nýjasta fréttabréf EURES

Nýjasta eintak fréttabréfsins EURES & þú er komið út. Hægt er að ná í lesa fréttabréfið á netinu eða gerast áskrifandi með því að smella hér. EURES & þú kemur úr fjórum sinnum á ári og birtir efni um flæði vinnuafls, nýjustu stefnur og strauma, væntanlega EURES viðburði o.m.fl.

14.8.2009

Mikið atvinnuleysi í Evrópu

Það er ekki einungis bagalegt atvinnustand hér á Íslandi um þessar mundir því atvinnuleysi í Evrópu (ESB-svæðinu) hefur aukist til muna á undanförnum mánuðum og er víðast hvar hærra en hér á landi.
Á meðfylgjandi mynd má sjá atvinnuleysistölur á ESB-svæðinu fyrir júlí.

10.8.2009

Nýjasta fréttabréf EURES

Nýjasta eintak fréttabréfsins EURES & þú er komið út. Hægt er að ná í lesa fréttabréfið á netinu eða gerast áskrifandi með því að smella hér. EURES & þú kemur úr fjórum sinnum á ári og birtir efni um flæði vinnuafls, nýjustu stefnur og strauma, væntanlega EURES viðburði o.m.fl.


Atvinna erlendis
Vinnumálastofnun
Sumarvinna á Norðurlöndunum
Nám erlendis
Hallo Norden
Norræn vefgátt um almannatryggingar
Nordisk eTax - Norræn skattamál
Europass - ferilsskrá

Fréttir og tilkynningar

27. Mars 2012

Upplýsingafundir um flutning til hinna Norðurlandanna

Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, og EURES, Evrópsk vinnumiðlun standa fyrir upplýsingafundum um að flytja til hinna Norðurlandanna. Á fundunum gefur fulltrúi EURES góð ráð varðandi atvinnuleit og starfsmaður Halló Norðurlanda veitir hagnýtar upplýsingar um skráningu inn í landið, félagslegar bætur til barnafólks, nám, húsnæðisleit og fleira.

• Fimmtudaginn 29. mars kl. 18:00: Að flytja Danmerkur

• Fimmtudaginn 29. mars kl. 20:30: Að flytja til Noregs

• Fimmtudaginn 12. apríl kl. 18:00: Að flytja til Svíþjóðar

2. Janúar 2012

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi

Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.


Athyglinni beint að

EURES aðstoðar þýska atvinnuleitendur við að finna ný tækifæri úti á landsbyggðinni í Sviss

Á hverju ári næst ekki að ráða í fjölmörg laus störf innan ferðamannaiðnaðarins – héðan í frá mun nýtt samstarf veita þýskum atvinnuleitendum kost á að komast í samband við nýja atvinnuveitendur, með aðstoð EURES.
Texti ritstýrður síðast: 12/2010

EURES í Eistlandi – að mynda samstarf til að vernda réttindi atvinnuleitenda

EURES í Eistlandi og áhugahópurinn MTÜ Living for Tomorrow hafa hafið samstarf til að vernda atvinnuleitendur, sem huga á starf erlendis, gegn sviksamlegum og hrottafengnum atvinnuveitendum.
Texti ritstýrður síðast: 11/2010

Hvernig tungumálanám getur leitt til nýrra tækifæra

Yfirstandandi samstarf milli EURES í sænskumælandi Álandseyjum og tungumálaskóla í Þýskalandi er að gera faglærðum, atvinnulausum þýskum atvinnuleitendum kleift að öðlast hagnýta reynslu á fallegum stað.
Texti ritstýrður síðast: 11/2010

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta
In English