Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu EURES

EURES fréttir

7.10.2011

Starfakynning í Ráðhúsi Reykjavíkur 14. og 15. október

Vinnumálastofnun og EURES standa fyrir starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 14. október kl. 17:00 – 20:00 og laugardaginn 15. október kl. 12:00 – 18:00. Á kynningunni verða kynnt laus störf og veittar upplýsingar um starfs- og búsetuskilyrði víða í Evrópu. Einnig gefst fólki færi á að ræða beint og milliliðalaust við evrópska atvinnurekendur.

16.8.2011

Vantar smiði, pípulagningamenn, rafvirkja, járnbindingamenn og bifvélavirkja til Noregs

Ráðningarþjónustan Personal Partner AS verður með viðtöl og tekur á móti umsóknum þriðjudaginn 30. ágúst á Grand hótel Reykjavík. Sjá má upplýsingar um störfin með því að smella hér.

8.6.2011

Starfstækifæri fyrir lagerstarfsmenn, vörubílstjóra og rafvirkja

Ráðningarþjónustan Manpower frá Noregi verður á Hótel Sögu föstudaginn 10. júní nk. frá klukkan 09:00 - 19:00 og laugardaginn 11. júní frá klukkan 09:00 til 15:00.

12.4.2011

Íslenskir atvinnuleitendur fjársjóður fyrir norskt atvinnulíf

Mikil eftirspurn eftir íslensku starfsfólki í Noregi

„Finnur þú ekki rétta fólkið heima í Noregi? Lausnin gæti verið að ráða Íslending“ NAV systurstofnun Vinnumálastofnunar í Noregi kynnti væntanlega starfakynningu sem haldin verður hér á landi um næstu helgi með þessum hætti. Einnig var talað um Ísland sem fjársjóðskistu fyrir norskt atvinnulíf þar sem hér sé fjöldi fólks sem býr yfir sérfræðikunnáttu, mikilli hæfni og reynslu og sé tilbúið að flytja sig um set. Íslendingar eigi auðvelt með að aðlagast norsku samfélagi vegna þess hve lík menning og tungumál landana eru og einnig sé vinnusiðferði íslendinga almennt mjög gott. Ljóst er að norsk fyrirtæki eru mjög áhugasöm um að ráða til sín Íslendinga um þessar mundir.

6.4.2011

Starfakynning í Ráðhúsi Reykjavíkur 15. og 16. apríl

Vinnumálastofnun og EURES standa fyrir starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 15. apríl kl. 17:00 – 20:00 og laugardaginn 16. apríl kl. 12:00 – 18:00. Á kynningunni verða kynnt laus störf og veittar upplýsingar um starfs- og búsetuskilyrði víða í Evrópu. Einnig gefst fólki færi á að ræða beint og milliliðalaust við evrópska atvinnurekendur. 


Atvinna erlendis
Vinnumálastofnun
Sumarvinna á Norðurlöndunum
Nám erlendis
Hallo Norden
Norræn vefgátt um almannatryggingar
Nordisk eTax - Norræn skattamál
Europass - ferilsskrá

Fréttir og tilkynningar

27. Mars 2012

Upplýsingafundir um flutning til hinna Norðurlandanna

Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, og EURES, Evrópsk vinnumiðlun standa fyrir upplýsingafundum um að flytja til hinna Norðurlandanna. Á fundunum gefur fulltrúi EURES góð ráð varðandi atvinnuleit og starfsmaður Halló Norðurlanda veitir hagnýtar upplýsingar um skráningu inn í landið, félagslegar bætur til barnafólks, nám, húsnæðisleit og fleira.

• Fimmtudaginn 29. mars kl. 18:00: Að flytja Danmerkur

• Fimmtudaginn 29. mars kl. 20:30: Að flytja til Noregs

• Fimmtudaginn 12. apríl kl. 18:00: Að flytja til Svíþjóðar

2. Janúar 2012

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi

Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.


Athyglinni beint að

EURES aðstoðar þýska atvinnuleitendur við að finna ný tækifæri úti á landsbyggðinni í Sviss

Á hverju ári næst ekki að ráða í fjölmörg laus störf innan ferðamannaiðnaðarins – héðan í frá mun nýtt samstarf veita þýskum atvinnuleitendum kost á að komast í samband við nýja atvinnuveitendur, með aðstoð EURES.
Texti ritstýrður síðast: 12/2010

EURES í Eistlandi – að mynda samstarf til að vernda réttindi atvinnuleitenda

EURES í Eistlandi og áhugahópurinn MTÜ Living for Tomorrow hafa hafið samstarf til að vernda atvinnuleitendur, sem huga á starf erlendis, gegn sviksamlegum og hrottafengnum atvinnuveitendum.
Texti ritstýrður síðast: 11/2010

Hvernig tungumálanám getur leitt til nýrra tækifæra

Yfirstandandi samstarf milli EURES í sænskumælandi Álandseyjum og tungumálaskóla í Þýskalandi er að gera faglærðum, atvinnulausum þýskum atvinnuleitendum kleift að öðlast hagnýta reynslu á fallegum stað.
Texti ritstýrður síðast: 11/2010

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta
In English