EURES fréttir
19.10.2010
Mikill fjöldi sótti starfakynningu
Vinnumálastofnun og EURES, evrópsk vinnumiðlun stóðu um síðustu helgi fyrir starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fulltrúar frá tíu Evrópulöndum kynntu laus störf, en einkum er eftirspurn eftir iðnaðarmönnum, bílstjórum, landbúnaðarverkafólki, matreiðslumönnum, kennurum, heilbrigðisstarfsfólki, verkfræðingum, kerfisfræðingum og upplýsingatæknifólki.
Alls mættu rúmlega 1000 manns og voru bæði fulltrúar fyrirtækja og EURES mjög ánægðir með þá atvinnuleitendur sem mættu. Stærstur hluti var vel menntað fagfólk og miðað við fyrri ár var fólk betur undirbúið og var meiri alvara með að finna sér starf erlendis og flytja út. Mestur áhugi var á störfum í Noregi.
Hér má sjá EURES ráðgjafa frá Danmörku og Finnlandi gefa góð ráð
Gestir og gangandi höfðu í mörg horn að líta
Fréttir og tilkynningar
27. Mars 2012
Upplýsingafundir um flutning til hinna Norðurlandanna
Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, og EURES, Evrópsk vinnumiðlun standa fyrir upplýsingafundum um að flytja til hinna Norðurlandanna. Á fundunum gefur fulltrúi EURES góð ráð varðandi atvinnuleit og starfsmaður Halló Norðurlanda veitir hagnýtar upplýsingar um skráningu inn í landið, félagslegar bætur til barnafólks, nám, húsnæðisleit og fleira.
• Fimmtudaginn 29. mars kl. 18:00: Að flytja Danmerkur
• Fimmtudaginn 29. mars kl. 20:30: Að flytja til Noregs
• Fimmtudaginn 12. apríl kl. 18:00: Að flytja til Svíþjóðar
2. Janúar 2012
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi
Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.


















