EURES fréttir
12.1.2011
Evrópusamvinna - kynning á Háskólatorgi 12. jan.
Evrópusamvinna.is
Sameiginlegur upplýsingavefur landsskrifstofa og þjónustuskrifstofa Evrópuáætlana er evropusamvinna.is. Þar má finna grunnupplýsingar um allar þær áætlanir og styrkjamöguleika sem Íslendingum bjóðast ásamt tenglum í viðeigandi heimasíður. Vefnum er ætlað að vera fyrsti áfangastaður fyrir þá sem hafa áhuga á Evrópusamstarfi, hvort sem það er til að sækja um styrki eða leita sér upplýsinga og þjónustu, en vita e.t.v. ekki alveg hvar þeir eiga að byrja.
Evrópusamstarf fyrir alla
Íslendingar hafa aðgang að fjölda Evrópuáætlanna í gegnum EES samninginn og hafa verið mjög virkir í Evrópusamstarfi allt frá því hann tók gildi. Í gegnum samstarfsáætlanir Evrópusambandsins er hægt að sækja styrki og stuðning innan flestra sviða menntunar og atvinnulífs og má þar telja áætlanir á sviði menntunar á öllum stigum, menningar, rannsókna og vísinda, jafnréttis, vinnumiðlunar og fyrirtækjasamstarfs. Einstaklingar, skólar, fyrirtæki, stofnanir og samtök finna eitthvað við sitt hæfi á Evrópusamvinnukynningunni á Háskólatorgi.
Fréttir og tilkynningar
27. Mars 2012
Upplýsingafundir um flutning til hinna Norðurlandanna
Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, og EURES, Evrópsk vinnumiðlun standa fyrir upplýsingafundum um að flytja til hinna Norðurlandanna. Á fundunum gefur fulltrúi EURES góð ráð varðandi atvinnuleit og starfsmaður Halló Norðurlanda veitir hagnýtar upplýsingar um skráningu inn í landið, félagslegar bætur til barnafólks, nám, húsnæðisleit og fleira.
• Fimmtudaginn 29. mars kl. 18:00: Að flytja Danmerkur
• Fimmtudaginn 29. mars kl. 20:30: Að flytja til Noregs
• Fimmtudaginn 12. apríl kl. 18:00: Að flytja til Svíþjóðar
2. Janúar 2012
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi
Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.


















