EURES fréttir
20.1.2011
Hefur þú áhuga á að starfa í Noregi?
EURES í Noregi í samvinnu við Vinnumálastofnun og EURES á Íslandi stendur fyrir starfakynningu á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 25. janúar á milli kl. 11:00 og 16:00.
Eftirtalin fyrirtæki kynna laus störf í Noregi:Tide Buss AS (www.tide.no), Manpower/ Manpower Helse (www.manpower.no), AM Direct (www.amdirect.no), Din Bemanningspartner (www.db-partner.no).
Kynningin er öllum opin en einkum er eftirspurn eftir fólki úr eftirtöldum starfsstéttum: hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, byggingarverkfræðingum, iðnaðarmönnum, meiraprófsbílstjórum (rútu- og strætisvagna), leikskólakennurum og mjólkurfræðingum.
Nánari upplýsingar um störfin sem í boði eru er að finna hér á síðunni undir "Laus störf".
Fréttir og tilkynningar
27. Mars 2012
Upplýsingafundir um flutning til hinna Norðurlandanna
Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, og EURES, Evrópsk vinnumiðlun standa fyrir upplýsingafundum um að flytja til hinna Norðurlandanna. Á fundunum gefur fulltrúi EURES góð ráð varðandi atvinnuleit og starfsmaður Halló Norðurlanda veitir hagnýtar upplýsingar um skráningu inn í landið, félagslegar bætur til barnafólks, nám, húsnæðisleit og fleira.
• Fimmtudaginn 29. mars kl. 18:00: Að flytja Danmerkur
• Fimmtudaginn 29. mars kl. 20:30: Að flytja til Noregs
• Fimmtudaginn 12. apríl kl. 18:00: Að flytja til Svíþjóðar
2. Janúar 2012
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi
Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.


















