EURES fréttir
6.4.2011
Starfakynning í Ráðhúsi Reykjavíkur 15. og 16. apríl
Vinnumálastofnun og EURES standa fyrir starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur 15. og 16. apríl (föstudaginn 15. apríl kl. 17:00 – 20:00 og laugardaginn 16. apríl kl. 12:00 – 18:00.
Á kynningunni verða kynnt laus störf og veittar upplýsingar um starfs- og búsetuskilyrði víða í Evrópu. Einnig gefst fólki færi á að ræða beint og milliliðalaust við evrópska atvinnurekendur. Sjá má hluta þeirra starfa sem í boði eru á síðunni www.eures.is með því að smella á „Laus störf“
Ellefu norsk fyrirtæki og bæjarfélög kynna laus störf og taka á móti umsóknum. Fyrirtækin sem um ræðir eru: EnerConsult, Tide Bus AS, Bremanger Hamn og Næring KF, Pan Garden AS, VERTO AS, Norwegian Geotechnical Institute, Medical Care AS, AM Direct, Enebakk kommune og Bodö kommune.
EURES ráðgjafar frá Bretlandi, Danmörku, Noregi, Þýskalandi, Svíþjóð, Litháen og Finnlandi kynna atvinnutækifæri í sínum löndum. Einkum er eftirspurn eftir fólki úr eftirtöldum starfsstéttum: Iðnaðarmönnum svo sem smiðum, pípulagningamönnum, rafvirkjum ofl. járniðnaðarmönnum, strætóbílstjórum, vörubílstjórum og vinnuvélastjórnendum, verkfræðingum og arkitektum, leikskólakennurum, hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum og öðru heilbrigðisstarfsfólki, kokkum og öðru starfsfólki í veitingageiranum, jarðfræðingum, veðurfræðingum og garðyrkjufræðingum auk sérfræðings í þróun vatnsaflsvirkjana.

Frá starfakynningu í október 2010
Fréttir og tilkynningar
27. Mars 2012
Upplýsingafundir um flutning til hinna Norðurlandanna
Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, og EURES, Evrópsk vinnumiðlun standa fyrir upplýsingafundum um að flytja til hinna Norðurlandanna. Á fundunum gefur fulltrúi EURES góð ráð varðandi atvinnuleit og starfsmaður Halló Norðurlanda veitir hagnýtar upplýsingar um skráningu inn í landið, félagslegar bætur til barnafólks, nám, húsnæðisleit og fleira.
• Fimmtudaginn 29. mars kl. 18:00: Að flytja Danmerkur
• Fimmtudaginn 29. mars kl. 20:30: Að flytja til Noregs
• Fimmtudaginn 12. apríl kl. 18:00: Að flytja til Svíþjóðar
2. Janúar 2012
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi
Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.


















