EURES fréttir
12.4.2011
Íslenskir atvinnuleitendur fjársjóður fyrir norskt atvinnulíf
Mikil eftirspurn eftir íslensku starfsfólki í Noregi
„Finnur þú ekki rétta fólkið heima í Noregi? Lausnin gæti verið að ráða Íslending“ NAV systurstofnun Vinnumálastofnunar í Noregi kynnti væntanlega starfakynningu sem haldin verður hér á landi um næstu helgi með þessum hætti. Einnig var talað um Ísland sem fjársjóðskistu fyrir norskt atvinnulíf þar sem hér sé fjöldi fólks sem býr yfir sérfræðikunnáttu, mikilli hæfni og reynslu og sé tilbúið að flytja sig um set. Íslendingar eigi auðvelt með að aðlagast norsku samfélagi vegna þess hve lík menning og tungumál landana eru og einnig sé vinnusiðferði íslendinga almennt mjög gott. Ljóst er að norsk fyrirtæki eru mjög áhugasöm um að ráða til sín Íslendinga um þessar mundir.
Mynd frá síðustu starfakynningu
Evrópsk starfakynning föstudaginn 15. apríl og laugardaginn 16. apríl
Um næstu helgi stendur Vinnumálastofnun og EURES, evrópsk vinnumiðlun, fyrir evrópskri starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur. EURES er samstarf um vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu en hlutverk EURES er að auðvelda vinnandi fólki að flytjast milli EES landa og jafna þannig út staðbundnar sveiflur innan svæðisins. Eftir hrun hefur samvinna EURES hér á landi og í Noregi aukist mjög þar sem Íslendingar sækjast fyrst og fremst eftir störfum þar í landi. Þannig fluttu 1.539 íslendingar til Noregs í fyrra og þar búa nú í kringum 9000 íslendingar samkvæmt íbúaskrá Þjóðskrár.
Á starfakynningunni sem nú er haldin í sjöunda sinn, munu Euresráðgjafar frá sjö Evrópulöndum kynna atvinnutækifæri í sínum löndum en fyrirferðamest eru norsku fyrirtækin, fjórtán talsins sem senda fulltrúa sína hingað til lands í von um að ráða til sín íslenska starfsmenn. Íslenskum atvinnuleitendum gefst þannig færi á að ræða beint og milliliðalaust við norska atvinnurekendur.
Aldrei hafa jafnmargir aðilar tekið þátt í kynningunni og aldrei hafa væntingarnar verið jafnmiklar. Sem dæmi þá er fyrirtækið Medical Care AS frá Osló hingað komið í leit að 120 hjúkrunarfræðingum , 50 sjúkraliðum og öðru heilbrigðisstarfsfólki. Einnig er nú í meira mæli en áður verið að leita að mjög sérhæfðum starfsmönnum svo sem veðurfræðingum, jarðfræðingum og sérfræðingum í þróun vatnsaflsvirkjana. Annars er eftirspurn eftir hvers konar iðnmenntuðu og háskólamenntuðu fólki .
Mynd frá síðustu starfakynningu
Góður árangur af fyrri starfakynningum
Aðsókn á síðustu starfakynningar hefur verið mjög góð en yfir 1000 manns mættu á síðustu kynningu sem haldin var í október á síðasta ári. Mikil ánægja hefur verið meðal þátttakenda með þá umsækjendur sem hafa mætt, þeir séu almennt vel menntaðir og hafi mikla starfsreynslu auk þess hafi þeir almennt verið vel undirbúnir og greinilegt að stór hluti þeirra var í fullri alvöru að íhuga flutninga.
Mörg fyrirtækjanna hafa mætt á fyrri starfakynningar, til dæmis er fyrirtækið Tide Buss frá Bergen nú að koma í fjórða sinn í leit að strætisvagnabílstjórum. Í síðustu heimsókn bauð fyrirtækið 21 bílstjóra vinnu eftir að hafa sett þá í aksturspróf, 16 þekktust boðið. Til að nefna önnur dæmi um árangur frá síðustu kynningu þá réð AM Direct 20 iðnaðarmenn. Bergen personal réð 4 smiði og 10 verkfræðinga. Þó norsk fyrirtæki séu í miklum meirihluta eru einnig kynnt störf frá öðrum löndum sem dæmi þá réð Satakunnan sairaanhoitpiiri, stór spítali á vesturströnd Finnlands 8 lækna og hjúkrunarfræðinga í kjölfar kynningarinnar í október 2010.
Þó erfitt sé að horfa á eftir hæfileikaríku fólki úr landi þá er rétt að muna að stór hluti þeirra ætlar sér að snúa aftur þegar betur árar og mun þá búa að þeirri reynslu sem það aflar sér nú erlendis.
Mynd frá síðustu starfakynningu
Fréttir og tilkynningar
27. Mars 2012
Upplýsingafundir um flutning til hinna Norðurlandanna
Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, og EURES, Evrópsk vinnumiðlun standa fyrir upplýsingafundum um að flytja til hinna Norðurlandanna. Á fundunum gefur fulltrúi EURES góð ráð varðandi atvinnuleit og starfsmaður Halló Norðurlanda veitir hagnýtar upplýsingar um skráningu inn í landið, félagslegar bætur til barnafólks, nám, húsnæðisleit og fleira.
• Fimmtudaginn 29. mars kl. 18:00: Að flytja Danmerkur
• Fimmtudaginn 29. mars kl. 20:30: Að flytja til Noregs
• Fimmtudaginn 12. apríl kl. 18:00: Að flytja til Svíþjóðar
2. Janúar 2012
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi
Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.


















