EURES fréttir
7.10.2011
Starfakynning í Ráðhúsi Reykjavíkur 14. og 15. október
Vinnumálastofnun og EURES standa fyrir starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 14. október kl. 17:00 – 20:00 og laugardaginn 15. október kl. 12:00 – 18:00.
Á kynningunni verða kynnt laus störf og veittar upplýsingar um starfs- og búsetuskilyrði víða í Evrópu. Einnig gefst fólki færi á að ræða beint og milliliðalaust við fulltrúa norskra fyrirtækja og bæjarfélaga sem munu kynna laus störf og taka á móti umsóknum. Sjá má hluta þeirra starfa sem í boði eru á síðunni www.eures.is með því að smella á „Laus störf“. Jafnframt munu EURES ráðgjafar frá Bretlandi, Danmörku, Noregi, Þýskalandi, Svíþjóð og Belgíu kynna atvinnutækifæri í sínum löndum.
Einkum er eftirspurn eftir fólki úr eftirtöldum starfsstéttum:
Iðnaðarmönnum svo sem smiðum, pípulagningamönnum, rafvirkjum ofl., járniðnaðarmönnum, verkfræðingum, hjúkrunarfræðingum ofl. heilbrigðisstarfsfólki, vélvirkjum,
suðumönnum og bifvélavirkjum fyrir vörubíla.

Frá starfakynningu í október 2010.
Fréttir og tilkynningar
2. Janúar 2012
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi
Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.
7. Október 2011
Starfakynning í Ráðhúsi Reykjavíkur 14. og 15. október
Vinnumálastofnun og EURES standa fyrir starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 14. október kl. 17:00 – 20:00 og laugardaginn 15. október kl. 12:00 – 18:00. Á kynningunni verða kynnt laus störf og veittar upplýsingar um starfs- og búsetuskilyrði víða í Evrópu. Einnig gefst fólki færi á að ræða beint og milliliðalaust við evrópska atvinnurekendur.

















