Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu EURES

EURES fréttir

21.9.2009

Námskeið um flutning innan Norðurlandanna

Halló Norðurlönd og EURES standa fyrir stuttum námskeiðum fyrir þá sem undirbúa búferlaflutninga
til Danmerkur, Noregs eða Svíþjóðar. Farið verður yfir atriði sem snúa að flutningi,
svo sem skráningu, almannatryggingar, atvinnu- og húsnæðisleit.

Þriðjudaginn 29. september
• kl. 18:00 - Að flytja til Danmerkur
• kl. 20:00 - Að flytja til Noregs

Þriðjudaginn 6. október
• kl. 18:00 - Að flytja til Svíþjóðar
• kl. 20:00 - Að flytja til Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur

Námskeiðin eru ókeypis og verða haldin í húsnæði Norræna félagsins að Óðinsgötu 7. Þau eru öllum opin og henta jafnt námsmönnum og þeim sem flytja vegna atvinnu eða í öðrum erindagjörðum. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Skráning hjá Norræna félaginu í síma 5111808 og á netfanginu hallo@norden.is. Nánari upplýsingar á www.norden.is og www.eures.is

Atvinna erlendis
Vinnumálastofnun
Sumarvinna á Norðurlöndunum
Nám erlendis
Hallo Norden
Norræn vefgátt um almannatryggingar
Nordisk eTax - Norræn skattamál
Europass - ferilsskrá

Fréttir og tilkynningar

2. Janúar 2012

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi

Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.

7. Október 2011

Starfakynning í Ráðhúsi Reykjavíkur 14. og 15. október

Vinnumálastofnun og EURES standa fyrir starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 14. október kl. 17:00 – 20:00 og laugardaginn 15. október kl. 12:00 – 18:00. Á kynningunni verða kynnt laus störf og veittar upplýsingar um starfs- og búsetuskilyrði víða í Evrópu. Einnig gefst fólki færi á að ræða beint og milliliðalaust við evrópska atvinnurekendur.


Athyglinni beint að

EURES aðstoðar þýska atvinnuleitendur við að finna ný tækifæri úti á landsbyggðinni í Sviss

Á hverju ári næst ekki að ráða í fjölmörg laus störf innan ferðamannaiðnaðarins – héðan í frá mun nýtt samstarf veita þýskum atvinnuleitendum kost á að komast í samband við nýja atvinnuveitendur, með aðstoð EURES.
Texti ritstýrður síðast: 12/2010

EURES í Eistlandi – að mynda samstarf til að vernda réttindi atvinnuleitenda

EURES í Eistlandi og áhugahópurinn MTÜ Living for Tomorrow hafa hafið samstarf til að vernda atvinnuleitendur, sem huga á starf erlendis, gegn sviksamlegum og hrottafengnum atvinnuveitendum.
Texti ritstýrður síðast: 11/2010

Hvernig tungumálanám getur leitt til nýrra tækifæra

Yfirstandandi samstarf milli EURES í sænskumælandi Álandseyjum og tungumálaskóla í Þýskalandi er að gera faglærðum, atvinnulausum þýskum atvinnuleitendum kleift að öðlast hagnýta reynslu á fallegum stað.
Texti ritstýrður síðast: 11/2010

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta
In English