Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu EURES

EURES fréttir

6.11.2009

Tækifæri til að kynnast fjölbreyttum samstarfsverkefnum Norðurslóðaáætlunar 2007-2013 í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 10. og 11. nóvember n.k.

Í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu Norðurslóðaáætlunar 2007-2013 LAVA09 verða þau fjölbreyttu verkefni sem Ísland tekur þátt í kynnt í Ráðhúsi Reykjavíkur. Opnunartími er 10. nóv. kl. 12:00 - 18:00 og 11. nóvember kl. 10:00 - 18:00 og er sýningin öllum opin. Verkefnin eru m.a. á sviðum viðbragða við loftslagsbreytingum, menningartengdrar ferðaþjónustu, heilsugæslu, fiskeldis, verslunar, veiða, handverks, viðbragða við stórslysum, almenningssamgangna, nýtingu trjáviðar, endurnýjanlegra orkugjafa, öldrunarþjónustu, vegagerðar og skapandi greina. Á hluta sýningarinnar verður „lifandi vinnustofa" skapandi frumkvöðla sem leggja aukið gildi til valinna NPP verkefna.
Norðurslóðaáætlun 2007-2013 er ein af svæðaáætlunum Evrópusambandsins og meginmarkmið hennar er að efla atvinnu-, efnahags-, umhverfis- og félagslega framþróun svæða og landa á norðurslóðum með samstarfsverkefnum yfir landamæri á milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Þema ráðstefnunnar er atvinnusköpun með áherslu á sóknarfæri sem felast í tengingu hefðbundinna atvinnugreina við skapandi greinar. Lögð er áhersla á virkt samstarf og tækifæri sem liggja í samstarfi hefðbundins og skapandi iðnaðar. Hvernig getur aðkoma skapandi greina aukið framþróun og virði fyrirtækja og stofnanna.


Atvinna erlendis
Vinnumálastofnun
Sumarvinna á Norðurlöndunum
Nám erlendis
Hallo Norden
Norræn vefgátt um almannatryggingar
Nordisk eTax - Norræn skattamál
Europass - ferilsskrá

Fréttir og tilkynningar

2. Janúar 2012

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi

Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.

7. Október 2011

Starfakynning í Ráðhúsi Reykjavíkur 14. og 15. október

Vinnumálastofnun og EURES standa fyrir starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 14. október kl. 17:00 – 20:00 og laugardaginn 15. október kl. 12:00 – 18:00. Á kynningunni verða kynnt laus störf og veittar upplýsingar um starfs- og búsetuskilyrði víða í Evrópu. Einnig gefst fólki færi á að ræða beint og milliliðalaust við evrópska atvinnurekendur.


Athyglinni beint að

EURES aðstoðar þýska atvinnuleitendur við að finna ný tækifæri úti á landsbyggðinni í Sviss

Á hverju ári næst ekki að ráða í fjölmörg laus störf innan ferðamannaiðnaðarins – héðan í frá mun nýtt samstarf veita þýskum atvinnuleitendum kost á að komast í samband við nýja atvinnuveitendur, með aðstoð EURES.
Texti ritstýrður síðast: 12/2010

EURES í Eistlandi – að mynda samstarf til að vernda réttindi atvinnuleitenda

EURES í Eistlandi og áhugahópurinn MTÜ Living for Tomorrow hafa hafið samstarf til að vernda atvinnuleitendur, sem huga á starf erlendis, gegn sviksamlegum og hrottafengnum atvinnuveitendum.
Texti ritstýrður síðast: 11/2010

Hvernig tungumálanám getur leitt til nýrra tækifæra

Yfirstandandi samstarf milli EURES í sænskumælandi Álandseyjum og tungumálaskóla í Þýskalandi er að gera faglærðum, atvinnulausum þýskum atvinnuleitendum kleift að öðlast hagnýta reynslu á fallegum stað.
Texti ritstýrður síðast: 11/2010

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta
In English