Almennt um EURES
Atvinnuleit
- Hvar er hægt að leita eftir starfi?
- Hvaða hagnýtu hluti þarf ég að hugleiða áður ég leita að vinnu?
- Hvernig skal hefja leit?
- Aðrar leiðir til að finna starf
- Atriði til íhugunar þegar sótt er um starf
- Hvaða önnur atriði þarf að íhuga?
- Hvernig skal undirbúa sig fyrir atvinnuviðtal?
- Get ég flutt atvinnuleysisbæturnar mínar ef ég flyt til annars aðildarríkis EES án þess að hafa starfstilboð?
1. Hvar er hægt að leita eftir starfi?
2. Hvaða hagnýtu hluti þarf ég að hugleiða áður ég leita að vinnu?
Áður en þú hefur leit að starfi er mikilvægt gera sér grein fyrir því að það er ekki endilega auðveldara að finna starf erlendis en í þínu heimalandi (heildarhlutfall atvinnuleysis í Evrópusambandinu er enn hátt). Engu að síður geta sumir geirar evrópska vinnumarkaðarins boðið upp á umtalsverð tækifæri, svo sem ferðamannageirinn og þjónustugeirinn (fjármálaþjónusta, rekstrarráðgjöf, byggingargeirinn, UT-geirinn og sumir hlutar heilbrigðisgeirans) og eins árstíðabundin vinna við landbúnað. Þú ættir einnig að muna að það er umtalsverður munur á atvinnutækifærum milli svæða á Evrópska efnahagssvæðinu og að aðstæður geta breyst mjög snöggt. Frekari upplýsingarnar um þetta má finna í hlutanum „Búseta og vinna" (Living and Working).
3. Hvernig skal hefja leit?
Heimsækja EURES vefsíðuna um frjálst flæði vinnuafls, þar sem þú finnur lausar stöður, upplýsingar um lífs- og starfsskilyrði, upplýsingar um vinnumarkaðinn, ásamt krækjum að öðrum gagnlegum upplýsingum. Þar getur þú einnig gert ferilskrána þína tiltæka hugsanlegum vinnuveitendum um alla Evrópu.
-Hafa samband við vinnumiðlun staðarins eða svæðisins vegna ráðlegginga. Þar gæti verið EURES ráðgjafi sem getur veitt þér persónulegri ráð. Hann/hún getur athugað boð um störf í EURES kerfinu og hjá EURES ráðgjöfum í því landi sem þú stefnir á að fara til.
- Athugað auglýsingar um laus störf í dagblöðum „gestgjafa" landsins (stærri almenningsbókasöfn fá þau oftast send reglulega). Mundu að mörg sérhæfð tímarit auglýsa laus störf á sérstökum sérfræðisviðum.
- Hafa samband við opinbera vinnumiðlun gestgjafalandins, sem ætti að geta ráðlagt þér. Mundu að sem þegn EES hefur þú sömu réttindi í öðru aðildarríki og sjálfir borgarar þess ríkis. Biddu um að fá að tala við EURES ráðgjafa sem hefur reynslu af að hjálpa erlendum ríkisborgurum.
4. Aðrar leiðir til að finna starf
Hins vegar er það þess virði að reyna eftirfarandi:
- Í mörgum aðildarríkjum eru einkaaðilar sem leggja sig sérstaklega eftir að finna tímabundna vinnu. Þú ættir að athuga hvort þeir rukka fyrir þjónustu sína og komast fyrirfram að eðli ráðningarsamninga þeirra.
- Einkareknar ráðningarskrifstofur eru einnig til, en þær beina sjónum sínum venjulega að störfum á stjórnunarstigi, eða sérstökum geirum, svo sem tölvuvinnslu eða fjármálum.
- Fyrir námsmenn geta starfakaupstefnur og leiðbeiningamiðstöðvar um starfsferil leikið mikilvægt hlutverk í starfaleitinni.
- Fyrirvaralausar umsóknir til fyrirtækja eru töluvert algengar. Þú ættir að finna eins miklar upplýsingar um fyrirtækið og þú getur, þar sem árangur getur oltið á getu þinni til að sýna hversu vel þú myndir passa inn í skipulag þeirra og þarfir. Umsóknin ætti að vera skrifleg, ætti að innihalda upplýsingar um menntun þína og hæfni, reynslu og ástæðurnar fyrir sérstökum áhuga þínum á fyrirtækinu. Sem valkost hafa mörg fyrirtæki sínar eigin ráðningarsíður á netinu, þar sem þú getur stundum sent inn rafræna umsókn.
- Tengsl eru mjög mikilvæg í flestum löndum, þar sem fyrsta tilkynning um mörg laus störf er oft frá manni til manns.
- Að eyða dálitlum tíma i því landi sem þú velur, á styrk eða í vinnunámsdvöl, er upplögð leið til að kynnast landinu og veitir tækifæri til að leita að starfi á staðnum. Mörg stór fyrirtæki skipuleggja slíkar dvalir.
5. Atriði til íhugunar þegar sótt er um starf
6. Hvaða önnur atriði þarf að íhuga?
7. Hvernig skal undirbúa sig fyrir atvinnuviðtal?
Eins og í heimalandi þínu, ættir þú að undirbúa þig vandlega fyrir atvinnuviðtal. Gættu þess að hafa bakgrunnsupplýsinar um fyrirtækið og vertu tilbúin(n) að spyrja spurninga, bæði um það og sérstaka þætti starfsins. Þú mátt einnig búast við að þurfa að sanna vald þitt á tungumáli gestgjafalandsins og sýna hvernig lykilkunnátta þín og eiginleikar passa við kröfur vinnuveitandans vegna þessa sérstaka starfs. Mörg stór fyrirtæki í ESB nota matsmiðstöðvar til að dæma um hvernig hugsanlegir starfsmenn myndu standa sig við raunverulegar aðstæður.
Hvaða skjöl á að hafa með sér í viðtalið?
Venjulega þarftu:
• nokkur eintök af ferilskránni þinni á viðeigandi tungumáli;
• löggilta þýðingu á prófskírteininu þínu (sjá nánar á menntagatt.is)
• ljósrit af brottfararskírteini skóla, háskólagráðu eða annarri menntun;
• vegabréf eða gilt nafnskírteini;
• afrit af fæðingarvottorði;
• viðeigandi E-eyðublað sem veitir þér réttindi til heilsugæsluþjónustu (t.d. E111); og
• nokkrar passamyndir.
8. Get ég flutt atvinnuleysisbæturnar mínar ef ég flyt til annars aðildarríkis EES án þess að hafa starfstilboð?
Fréttir og tilkynningar
27. Mars 2012
Upplýsingafundir um flutning til hinna Norðurlandanna
Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, og EURES, Evrópsk vinnumiðlun standa fyrir upplýsingafundum um að flytja til hinna Norðurlandanna. Á fundunum gefur fulltrúi EURES góð ráð varðandi atvinnuleit og starfsmaður Halló Norðurlanda veitir hagnýtar upplýsingar um skráningu inn í landið, félagslegar bætur til barnafólks, nám, húsnæðisleit og fleira.
• Fimmtudaginn 29. mars kl. 18:00: Að flytja Danmerkur
• Fimmtudaginn 29. mars kl. 20:30: Að flytja til Noregs
• Fimmtudaginn 12. apríl kl. 18:00: Að flytja til Svíþjóðar
2. Janúar 2012
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi
Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.


















