Útgáfa
EURES á Íslandi hefur á undanförnum árum gefið út fjölbreytilegt upplýsingaefni, má þar á meðal nefna ýtarlegan upplýsingabækling um lífs- og vinnuskilyrði á Íslandi, bæði á ensku og pólsku, einblöðung um reynslusögur úr starfi EURES og gátlista fyrir atvinnurekendur. Hér að neðan má nálgast viðkomandi efni á pdf-formi.
- Atvinnutækifæri í Evrópu
- Living and working in Iceland á ensku
- Living and working in Iceland á pólsku
- Gátlisti fyrir atvinnurekendur
- Reynslusögur úr starfi EURES
EURES-netið heldur úti öflugri útgáfustarfsemi og hefur gefið út mikið magn upplýsingaefnis ætlað atvinnuleitendum og atvinnurkendum. Hér að neðan er hægt að nálgast upplýsingaefni sem hefur verið þýtt yfir á íslensku.
- EURES - evrópsk vinnumiðlun
- Að finna vinnu í Evrópu - leiðbeiningar fyrir atvinnuleitendur
- "Þú heyrir frá okkur" - Handbók um atvinnuleit
Til að geta náð í eyðublöðin þarf að nota Acrobat Reader sem hægt er að nálgast ókeypis hér.
Fréttir og tilkynningar
2. Janúar 2012
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi
Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. janúar 2010 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.
7. Október 2011
Starfakynning í Ráðhúsi Reykjavíkur 14. og 15. október
Vinnumálastofnun og EURES standa fyrir starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 14. október kl. 17:00 – 20:00 og laugardaginn 15. október kl. 12:00 – 18:00. Á kynningunni verða kynnt laus störf og veittar upplýsingar um starfs- og búsetuskilyrði víða í Evrópu. Einnig gefst fólki færi á að ræða beint og milliliðalaust við evrópska atvinnurekendur.

















